Hefur einhver spáð almennilega í
jólatextum??
Helgi Björns ætlar að reyna að slá
einhvern svo hann geti gefið ástinni sinni gjöf..
‘Eg vona að
hann slái syngjandi bjánann hann Einar Ágúst sem að þarf landakort
til að rata útúr Kringlunni...
Eiki Hauks
er með frekju bara og heimtar jól alla daga..og hreinlega öskrar
það!
Þrjú á Palli
vilja að allir komi til sín á fyrsta kvöldi jóla.. þau lofast til
að gefa okkur eitthvað ef við komum..
Brooklyn Fæv
ætla að eyða jólunum á sleða...
Edda Heiðrún
Bachman er með eitthvað fast í strompnum hjá sér..
Bing Crosby
ætlar að eyða jólunum heima hjá sér... steindauður
maðurinn!!
Svölu Bo
hlakkar til enn einna jólanna... fer þetta ekki að verða gott hjá
henni blessaðri?
Brunaliðið
segir að það eigi að gefa börnum brauð að bíta í á jólunum...mér
finnst örla á örlítilli nísku í garð barna þar á bæ...
Katla María er viss um að fá jólagjöf´... ég er viss um að hún
fær enga..
I could go on and on...
...en sleppi því..